Hjalti Þór Vignisson

Breytingar
Framundan eru breytingar eins og ég hef kynnt með yfirlýsingu sem birtist í Eystrahorni og hornafjordur.is. Síðustu þrjá daga dvaldi ég í Reykjavík ásamt bæjarráði Hornafjarðar. Hittum þingmenn, ráðherra og annað gott fólk um ýmis hagsmunamál sem við teljum að við þurfum að eiga samvinnu við ríkið með. Málefni sem á dagskrá voru snerta sjávarútvegsmál, framhaldsfræðslu og fjarnám á háskólastigi, Vatnajökulsþjóðgarð, Náttúrustofu Suðausturlands, veglagningu um Hornafjarðarfljót, innsiglinguna um Hornafjarðarós, jöfnun húshitunarkostnaðar, málefni fatlaðs fólks og uppbyggingu nýs hjúkrunarheimilis.

Okkur var vel tekið og á næstu dögum vinn ég að því að fylgja heimsókninni eftir með erindum til ráðuneytanna.

Þriðjudagur
Hef fengið ábendingar um að merkingum sé ábótavant víða hjá okkur.  Það var einmitt ætlunin núna i sumar að meta reynsluna af sumrinu, sérstaklega í kringum Gömlubúð, og lagfæra það sem betur má fara með ýmis smærri atriði.  Eins þarf að merkja stofnanir og hús sveitarfélagsins og hefur Ásgerður formaður bæjarráðs verið óspar að minna okkur á það.  Vonandi verður hægt að ýta þvi verkefni úr vör innan

Safnamál eru í deiglunni.  Á döfinni er að gera gangskör í skráningum og forvörslu gripa sem hefur nokkuð skort á vegna annarra verkefna undanfarin ár.  Aðstaða til slíks er að byggjast upp á Menningarmiðstöðinni.  Ljóst er að söfnin verða að fá sem fyrst allt húsnæði sem keypt var fyrir nokkrum misserum sem þjónustuhúsnæði.  Matarsmiðja Matís er í hluta af því húsnæði og vinnur nú Vigfús stöðvarstjóri að því að finna hentugt húsnæði í staðinn.  Ekki að það sé vilji sveitarfélagsins að setja Matís út á ísinn.  Síður en svo starfsemi Matís er okkur kær og hefur reynst einstaklingum og fyrirtækjum í matvælaiðnaði vel.   Bæta má við að vaxtarmöguleikar matarsmiðjunnar eru jafnframt takmarkaðir í núverandi húsnæði.

Húshitun
Enn og eftir minnti stjórn Samtaka sveitarfélaga á köldum svæðum á þá miklu hagsmuni sem felast í jöfnun á húshitunarkostnaði fyrir köld svæði.  Okkur var vel tekið eins og stundum áður.  Undafarið hefur okkur orðið nokkuð ágengt en ennþá er talsvert í land.  Nýr ráðherra er vel inn í þessum málum sem og starfsfólk ráðuneytis.  Hópurinn ætlar að hittast eftir mánuð og fara betur yfir stöðuna.  Sérstaklega var gott að heyra að verið er að skoða hvernig jafna eigi álögur þeirra sem búa í dreifbýli við þá sem búa í þéttbýli.

Fimmtudagur
Unnið þessa dagana að því að leggja grunn að stórum verkefnum vetrarins. Skipulagsmál og stefnumótun ber þar hæst.  Það stefnir í miklar framkvæmdir í vetur á vegum fyrirtækja.  Mikil uppbygging á vegum ferðaþjónustufyrirtækja í farvatninu.  Veitir ekki af segja sumir meðan raddir eru líka um hvort ekki sé nóg komið og nú beri að staldra við.  Ef marka má þá sem best eiga að þekkja til þessara mála er ennfrekari fjölgun ferðamanna í vændum.  Það þýðir auðvitað að svæðið verður að undirbúa sig á allan hátt.  Fjölgun gistirýma, uppbygging áfangastaða og gott skipulag er mikilvægt.

Ferðamannastaðir
Nú eigum við skipulag fyrir Skaftafell, Jökulsárlón og hafnarsvæðið á Höfn.  Næst verður ráðist í að móta skipulag fyrir Fjallsárlón og Heinabergssvæðið.  Þar með erum við komin vel á veg með skipulag ferðamannastaða en ekki á leiðarenda.  Fleiri staðir nærri byggð bíða næstu misseri og síðan verður að fikra sig til fjalla, þar sem hugmyndir eru meðal annars um uppbyggingu fjallaskála.

Fráveita
Það er mikilvægt að koma fráveitu í sveitarfélaginu í gott horf.  Nokkur mikilvæg skref hafa verið stiginn á síðustu misserum.  Útrásir á við Hornafjörð sameinaðar og komið upp fyrsta stig hreinsun við Leiðarhöfða er mikilvægt.  Næsta skref er að ná utan um það sem fer í Skarðsfjörð og Hornafjarðarhöfn.  Sameina þarf útrásir og koma upp hreinsun.

Ekki er víst að fyrsta þrep hreinsun dugi til en það kemur í ljós með reglubundnum mælingum.  Útrásin þarf að ná út þar sem straumur er mikill til að niðurbrotið verði meira.  Kostnaður við þessar framkvæmdir eru umtalsverðar en við höfum lagt áherslu á að koma upp lausnum án mikils rekstrarkostnaðar.  Með því að fylgjast með tækniframförum og læra af reynslu annarra er hægt að fullyrða að fjárfestingin verði á endanum eins skynsöm og kostur er, með tilliti til árangurs af hreinsun og stofnkostnaði.

Föstudagur
Að undanförnu hef ég átt samtöl við starfsfólk Náttúrustofu Suðausturlands sem tók til starfa nú í sumar, þau Kristínu Hermannsdóttur og Snævarr Guðmundsson.  Kristín ræddi um áhuga sinn á að tengja starfið skólum og öðrum aðilum í samfélaginu, s.s. ferðaþjónustunni.  Jafnframt ræddi hún fjölmörg áhugaverð verkefni sem aukið geta þekkingu okkar á náttúrfari á landi, lofti og sjó.  Snævarr er jöklafræðingur og hefur rannsakað Breiðamerkursand. Sagði hann að nýverið hafi fundist birkilurkur sem hafi nýlega komið undan jöklinum.  Áhugavert verður að heyra niðurstöður aldursgreiningar.  Hann hefur stundað rannsóknir á himingeimnum í 25 ár og hyggur á framhald þeirra hér á Hornafirði.  Höfum við því rúntað um sveitir og reynt að finna hentugan stað.  Hann hefur augastað á hól einum nálægt Fjárhúsavík við Ægissíðu og mun leggja mál sitt fyrir bæjarrað innan skamms.  Strandstígurinn á Höfn er honum og Kristínu hugleikinn.  Segja þau að vel mætti gera fróðleik um jökla og himingeiminn aðgengilegann á og við stíginn á skemmtilegan hátt.  Þetta er bara ein af fjölmörgum hugmyndum sem þau hafa verið að setja niður á blað á þeim stutta tíma sem þau hafa starfað hér á Hornafirði.

Ef heldur áfram sem horfir verður stofnun Náttúrustofu Suðausturlands mikið framfaraskref fyrir byggðina í bráð og lengd.

Næstu framkvæmdir
Miklar framkvæmdir á vegum sveitarfélagsins eru senn að baki.  Stækkun á Krakkakoti, götur, opin svæði, Heppuskóli, ný sorpgryfja og sitthvað fleira.  Fullnaðarfrágangur á fráveitu á Höfn og í Nesjum, lokaframkvæmdir við ráðhús að utan, endurbætur á skólahúsnæði tónskólans og klæðning Sindrabæjar og lagfæringar á Holti eru komnar í sigtið.  Á umræðustigi er frekari uppbygging íþróttamannvirkja.

Aðsókn í Gömlubúð hefur verið góð það sem af er sumri þrátt fyrir litla sem enga kynningu.  Í gær kom út bæklingur á ensku og íslensku sem segir frá söfnum sem skoða má í sveitarfélaginu.  Hafnarsvæðið dregur nú þegar að sér tugþúsundir ferðamanna miðað við gestakomur í Gömlubúð.  Þeim á eftir að fjölga enn frekar með markvissari kynningu.

Skipulagsmál verða fyrirferðarmikil á næstu mánuðum.  Deiliskipulag á Krossey og við HSSA eru komin vel á veg.  Lagður verður grunnur að frekari deiliskipulagsverkefnum á næstu vikum.  Þar má nefna svæðið við Drápskletta og Ægissíðu, umhverfi Holts á Mýrum, Nesjahverfi og hugsanlega svæðið sem liggur frá miðbæ, á milli Hafnarbrautar og Ránarslóðar og að Óslandshæð.

Atvinnustefna verður mótuð í samvinnu við Samtök sunnlenskra sveitarfélaga, unnið verður að gerð safnastefnu eftir að safnaráð styrkti það verkefni myndarlega nú í vor og hugmyndir hafa vaknað um stefnumótun fyrir Hornafjarðarhöfn.  Stefna í umhverfismálum er nú í lokadrögum og Hugrún Harpa, varaformaður umhverfisnefndar hefur gert drög að framkvæmdaáætlun, sem hægt verður að ræða og móta frekar við lokaafgreiðslu stefnunnar.

Þriðjudagur
Þakkir fá allir þeir sem lögðu hönd á plóg við framkvæmd Unglingalandsmóts UMFÍ sem fór hér fram um helgina.  Í rauninni voru flestir sem vetlingi gátu valdið við störf um helgina.  Þeir sem ekki áttu kost á að vinna á landsmótinu voru margir hverjir uppteknir af móttöku og þjónustu við ferðamenn sem eru í þúsundatali dag hvern í héraðinu.

Að undanförnu hafa verið sagðar fréttir frá áhuga bænda í Austur-Skaftafellsýslu að fá að drepa álftir. Til að verja eigur sínar og fjárfestingar. Ræktun bænda er grunnur að afkomu þeirra. Aukin sókn í korn- og repjurækt sparar bæði gjaldeyri og geri bændurna sjálfbærari með aðföng. Það er því ekki hægt að búa við að ein tegund fugla geti, óáreitt, grafið undan afkomu bænda hér í Hornafirði.

Við Haukur Ingi lögðum grunn að vinnu við fjárhagsáætlun í dag.  Gerði drög að verkefnalista fyrir næsta vetur sem fer í umræðu innan skamms.  Hitti Birgi Árnason og ræddi stöðuna.

Framkvæmdahugur víða, í ferðaþjónustu og sjávarútvegi sérstaklega.  Líklega fara hlutir að skýrast með hitaveitumál innan tíðar.

Unglingalandsmót
Allt á fullu í allan dag. Keppni gengið vel og félögin sjálfum sér til sóma. Sjálfboðaliðar skipta tugum og leggja fram ómetanlega vinnu til að láta þetta allt ganga upp. Landsmótsnefndin hefur staðið í ströngu og uppsker nú árangur erfiðisins.  Getur verið stolt af starfi sínu.  Hef fylgst með sérgreinastjórum keppnisgreina sem vinna þrotlaust til að láta dagskrá ganga upp og halda skipulagi.  Í mörg horn að líta og kanski ekki allir sem átta sig hversu viðamikið þetta starf er.  Humarsúpan sem Kristján Guðnason útbjó rauk út í sölutjöldum Sindra þar sem margir stóðu vaktina í dag.

Setningarathöfnin var sérstaklega vel lukkuð. Þórdís Imsland saung Ísland er land þitt með eftirminnilegum hætti á meðan Matthildur formaður USÚ og Ásgrímur formaður Sindra drógu fána UMFÍ að húni.  Tignarleg stund.  Það var vel til fundið að fá Sveinbjörgu Zophoníasardóttur til að hlaupa með kyndilinn sem hún síðar kveikti landsmótseldinn með.  Sankölluð fyrirmynd.  Eva Rán stal senunni með Súmba dansi og fékk alla viðstadda með sér. Svo kom sjálfur Páll Óskar og kórónaði athöfnina eins og honum einum er lagið.

Í dag hitti ég hóp ungra manna þar sem ég var að dæma fótboltaleik. Þeir voru níu saman í hóp, 17-18 ára gamlir og stunda nám við menntaskóla á höfuðborgarsvæðinu. Þegar þeir stigu inn á fótboltavöllinn höfðu þeir nýlokið leik í körfubolta í Bárunni. Að ræða við þessa stráka, sjá hvernig þeir komu fram og skynja vináttuna á milli þeirra (sem þeir styrkja enn frekar á þessu móti) fær mann til að gleðjast og trúa enn frekar á gildi Unglingalandsmótanna.