Gullkastið

Gullkastið – Arne Slot Rekinn
Liverpool hélt spilunum þétt að sér varðandi framtíð Arne Slot voru voru flestir farnir að búa sig undir hann áfram sem stóra liðsins þrátt fyrir að hans staða væri orðin allt að því vonlaus. Það lá því ekkert í loftinu að fréttin Arne Slot rekinn væri yfirvofandi þó það sé ekki hægt að segja að hún komu á óvart.

Andoni Iraola yfirburða langlíklegastur til að taka við. Hann hefur gert frábæra hluti með Bournemouth og var auðvitað ráðin þangað af Richard Hughes.

Liverpool hefur ekki skipt oft um stjóra í sögulegu samhengi og þegar það gerist er jafnan tilefni fyrir Neyðarþátt.

Stjórnandi: Einar Matthías

Viðmælendur: SSteinn og Maggi

Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti:

Gull Áfengislaus / Verdi Travel  / Ögurverk ehf

MP3: Þáttur 571

Gullkastið – Tölum Aldrei Um Þetta Tímabil Aftur
Liverpool spilar í Meistaradeild Evrópu næsta vetur þannig að það er óhætt að nota gamla góða Men In Black pennann á þetta tímabil og gleyma því. Tímabilið 2025-26 gerðist ekki.

Skoðuðum lokaumferðina, stöðuna á toppliðunum í upphafi leikmannagluggans og hentum í létt uppgjör á tímabilinu

Stjórnandi: Einar Matthías

Viðmælendur: SSteinn og Maggi

Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti:

Gull Áfengislaus / Verdi Travel  / Ögurverk ehf

MP3: Þáttur 570

To do listi Richard Hughes
Það er Gullkast annað kvöld og vonandi verður það í síðasta skipti sem við þurfum að ræða tímabilið 2025-26. Men In Black penninn góði kæmi sér ljómandi vel núna. Það er þó bót í máli að á þessu tímabili djöfulsins duga 60 stig til að komast í Meistaradeild Evrópu sem er það minnsta í sögunni fyrir fulltrúa úr Ensku Úrvalsdeildinni. Það gerir það að verkum að næsta tímabil er ekki ónýtt líka.

Verkefnalisti Richard Hughes er hinsvegar rosalegur og ljóst að við þurfum nokkrar jákvæðar fréttir strax næstu daga.

Arne Slot – Allt bendir til að Hughes og stjórnendateymi félagsins ætli að halda tryggð við Slot áfram, þvert á vilja mjög mikils meirihluta stuðningsmanna félagsins. Það var bókstaflega ekkert í leik Liverpool á þessu tímabili sem gefur tilefni til að treysta honum áfram, þetta tímabil var algjört hrun og fótboltinn drepleiðinlegur. Áfall í sumar hafði auðvitað áhrif en fótboltinn sem við erum að horfa á var byrjaður að þróast í þessa átt löngu áður en síðasta tímabil kláraðist. Fráfall Jota í sumar er því ódýr afsökun fyrir heilu tímabili en hafði vissulega áhrif.

Eitt orð frá Slot til að lýsa tímabilinu var “Meiðsli”. Áhugavert í ljósi þess að hann sagði í sumar að hann og Hughes væru sammála um að hafa hópinn lítinn og þéttan frekar en 25-26 manna hóp sem væri erfitt að halda ánægðum. Það er eins og þeir hafi aldrei horft á heilt tímabil og auðvitað lenti Liverpool í endalaust fyrirsjáanlegum meiðslavandræðum sem rústuðu tímabilinu. Bekkurinn megnið af mótinu er fáránlega veikur hjá ríkjandi meisturum og ljóst að þarna skitu þeir félagar laglega í heyið og verða að laga hratt fyrir næsta tímabil. Fyrir hvern einasta sem fer í sumar þarf að fá 1-2 í staðin í sumar.

Jacquét og Leoni fara meiddir inn í sumarið, Ekitike verður líklega aldrei 100% næsta tímabil ef hann verður það einhverntíma. Bradley er svo líklega meiddur fram á haust (og meiðist svo strax aftur hvort eð er). Það verður að þétta og styrkja hópinn óháð því hver er stjóri.

FSG eru sagðir ætla að taka end of season review þar sem framtíð stjórans er meðal annars á dagskrá  þannig að fáum það staðfest fyrst. Hann á eitt ár eftir af samningi rétt eins og framkvæmdastjórarnir sem ráða framtíð hans, það er enganvegin eðlileg eða góð staða.

Leikmannakaup

Félagið samþykkti að rifta samningi Mo Salah sem gat mjög illa unnið með Slot í vetur. Það er morgunljóst að fyrir hann þarf Liverpool að kaupa alvöru arftaka og helst tvo frekar en einn.

Andy Robertson skilur eftir sig stærra skarð en Kostas Tsimikas getur nokkurntíma fyllt. Fjölhæfur varnarmaður sem getur leyst vinstri bakvörð er líklegra en ódýrari týpa af Milos Kerkez. Honum er svo væntanlega ætla að taka þessa stöðu endanlega yfir.

Alvöru varnartengiliður getur kíttað upp í töluvert af vandræðum Liverpool í vetur og verður að vera mjög ofarlega á innkaupalistanum. Hvað sem Slot var að reyna með miðjumenn Liverpool í vetur þá voru öll lið búinn að lesa það í febrúar/mars 2025. Þetta blasti ágætlega við fyrir þetta tímabil en var samt verra en maður óttaðist. Losa Endo og Bajcetic úr hóp og kaupa leikmann sem léttilega tekur þetta hlutvert af Gravenberch sem þá getur farið nær marki andstæðingana þar sem hann er miklu öflugri.

Luis Diaz holan er ennþá gapandi. Líklega veðja þeir áfram á Cody Gakpo (fósturson Arne Slot) og Rio Ngumoah en við sáum í vetur að Liverpool þarf miklu meira. Miklu minna traust á Gakpo sem er ágætur í flestu ekki ekki mjög góður í nokkrum sköpuðum hlut. Rio er auðvitað vonarstjarna en það eru engar líkur á að treysti verði á hann 90 mínútur í hverri viku næsta vetur. Hann var að fá örfáar mínútur í vetur.

Hugo Ekitike er meiddur fram að áramótum hið minnsta og Alexander Isak er aldrei að fara halda út í 2-4 keppnum. Það vantar einn sóknarmann í viðbót og þá helst einhvern nær Firmino eða Diaz en endilega hreina níu. Það er enginn ástæða að spila hreinræktuðum níum ef stjórinn hefur ekki hugmynd um hvernig hægt er að byggja upp sókn sem endar á að koma níunni í færi.

Það er erfitt að sjá hvernig Liverpool gat fyllt skarð Trent Alexander-Arnold eitthvað mikið verr og því erum við nokkurnvegin á byrjunarreit aftur núna. Conor Bradley er óþolandi oft meiddur og alls ekki það góður til að byrja með að Liverpool sé að treysta á hans heilsu svo árum skipti. Frimpong sem kom fyrir 45m punda er síðan svo lélegur bakvörður að Slot spilaði á endanum bókstaflega öllum öðrum frekar en honum í hans stöðu. Versta er að Frimpong er jafnvel ennþá minna sannfærandi sem kantmaður. Er þetta leikstíll Liverpool eða keyptum við köttinn í sekknum? Hann var spennandi sem leikmaður Leverkusen ef ég man rétt.

Er Konate að fara eða ekki? Hvernig er bara ekki búið að taka ákvörðun um framtíð hans? Fari hann er Liverpool með Van Dijk 35 ára, Joe Gomez, Jacquét og Leoni. Gomez er að fara meiðast og hinir tveir eru báðir að jafna sig á langtímameiðslum. Liverpool leiðin væri að kaupa samt ekki miðvörð í stað Konaté afreki þeir að klúðra hans samningi.

Talandi um það, hefur einhver samið við Liverpool á þessu tímabili annar er Gravenberch?

Alisson verður að vera áfram og vonandi haldast heill því hann er augljóslega ennþá miklu betri en Mamardashvili. Værum væntanlega búin að heyra af því ef hann væri að fara.

Læknateymið þarf að finna út hvort MacAllister sé búinn að hlaupa yfir sig 28 ára eða þetta tímabil hafi verið undantekning. Stytta væri ekki mikið verri en það sem hann hefur sýnt á köflum í vetur.

Curtis Jones er eins óvissa. Hann virðist ekki eiga gott samband við stjórann og hefur verið orðaður sterklega í burtu. Fari hann þarf að finna annan miðjumann í staðin og helst einhver uppalinn.

Szoboszlai þarf svo að berja niður hurðina hjá Slot og útskýra fyrir honum að hann er miðjumaður, ekki vara bakvörður.

Ansi hreint mörg óvissuatriði og alls ekki tæmandi listi, margt af þessum væri líklega auðveldara að leysa bara með nýjum stjóra sem hentar hópnum betur.

FSG hefur samt alveg áður farið á móti straumnum og reynst sannspáir en aldrei eins og þeir eru að gera núna. Núna er heldur betur enginn Klopp til láta allar ákvarðanir líta út fyrir að vera helmingi meiri snilld en þær kannski voru. FSG núna er mun líkara tímanum þegar Rodgers var stjóri liðsins eða hamfaraglugganum sem Dalglish fékk.

Gullkastið – Lokavikan
Blessunarlega er þetta síðasta vika tímabilsins og Meistaradeildarsæti á næsta tímabili ekki enn í höfn. Liverpool er ennþá með þetta í sínum höndum og getur tryggt sæti í Meistardeild á erfiðum heimavelli sínum Anfield Road á sunnudaginn. Ekki tókst það á föstudaginn á Villa Park, alls ekki.

Salah baunaði félagið og hefur umræða vikunnar heldur betur snúist um hans yfirlýsingi og ekki síst viðbrögð leikmanna Liverpool við henni, það er augljóslega ekki allt með felldu innan herbúða félagsins.

Spáðum einnig í helstu fréttum vikunnar.

Stjórnandi: Einar Matthías

Viðmælendur: SSteinn og Maggi

Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti:

Gull Áfengislaus / Verdi Travel  / Ögurverk ehf

MP3: Þáttur 569

Gullkastið – Erfiður Heimavöllur?
Anfield Road í vetur hefur verið völlurinn þar sem lið í frjálsu falli geta mætt og fengið sjálfstraust á ný. Amorim vann sem stjóri United, Totenham og Chelsea voru búin að tapa sex leikjum í röð áður en þau mættu á Anfield, Sean Dyche náði í 3-0 sigur áður en hann var rekinn og ekkert af nýliðunum hefur tapað á Anfield. Frammistaðan og leikurnn gegn Chelsea var alveg á pari við þessa verslu leiki og stuðningsmenn á Anfield orðnir það langþreyttir að baulað var hraustlega á liðið, það er ekki eðlilegt ástand á Anfield.

Meistaradeildarsæti á næsta tímabili er ekki staðfest ennþá en Liverpool fær gott tækifæri á Villa Park á föstudaginn. Sigurvegari í þeim leik verður í Meistaradeildinni á næsta tímabili.

Staða Arne Slot hefur töluvert mikið verið til umræðu þessa vikuna

Stjórnandi: Einar Matthías

Viðmælendur: Óli Haukur

Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti:

Gull Áfengislaus / Verdi Travel  / Ögurverk ehf

MP3: Þáttur 568

Gullkastið – Stórleikur um helgina
Liverpool fer næst á Old Trafford og getur með sigri náð djöflunum að stigum sem væri hressandi eftir allt sem á undan er gengið í vetur. Risaslagur að vanda en Meistaradeildarsætið að ári er orðið ansi líklegt eftir annan góðan sigur í deildinni gegn Crystal Palace.

Drógum svo m.a. tvo heppna í Bræðsluleiknum okkar en þeir fá sitthvora tvo miðana á Bræðsluna á Borgarfirði Eystri í sumar.

Stjórnandi: Einar Matthías

Viðmælendur: Maggi og SSteinn

Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti:

Gull Áfengislaus / Verdi Travel  / Ögurverk ehf

MP3: Þáttur 567

Gullkastið – Leiðtogarnir Afgreiddu Everton
Trölla sigurmark fyrirliðans gegn Everton á 100.mínútu er nokkuð auðveldlega besta moment þessa tímabils og tryggði í leiðinni ákaflega þrjú stig og 100% árangur Liverpool á þessum nýja heimavelli Everton. Borgin er svo sannarlega rauð eftir sem áður. Meistaradeildarsæti er því enn meira innan seilingar eftir helgina.

Það er hinsvegar ekki nóg að komast í Meistaradeildina það þarf spila eins og menn þar líka, Liverpool gerði það vissulega öllu betur á Anfield heldur en í París um daginn en niðurstaðan varð sú sama, 0-2 tap og samanlagt 0-4 gegn PSG sem er bara alls ekkert ásættanlegt hjá Liverpool. Tvö vonbrigðatímabil í röð í Meistaradeildinni og klárlega eitthvað sem félagið þarf að stefna á að laga strax í sumar.

Allar fréttir frá klúbbnum eru líka á þá leið að félagið þurfi að láta taka til sín á leikmannamarkaðnum enda stór skörð sem þarf að fylla og ljóst í vetur að stórar holur eru í hópnum fyrir. Skoðum aðeins þann markað líka.

Bræðslan 2026 – Gjafaleikur

Við framlengjum gjafaleikinn okkar með Bræðslunni í nokkra daga. Bræðslan er ríkishátíð Kop.is og gefum tveimur heppnum tvo miða á Bræðsluna í ár. Það er koluppselt á hátíðina og því um að gera að freista gæfunnar að vinna miða. Eina sem þarf til að vera með er að skilja eftir ummæli við þessa færslu eða þessa færslu á Facebook síðu Kop.is og hafa netfang með.

Stjórnandi: Einar Matthías

Viðmælendur: Maggi og SSteinn

Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti:

Gull Áfengislaus / Verdi Travel  / Ögurverk ehf

MP3: Þáttur 566

Gullkastið – Er Ennþá Séns?
Einvígið gegn PSG er í brennidepli og ljóst að Liverpool er í gríðarlegri brekku núna þegar einvígið er hálfnað eftir vond úrslit og enn verri frammistöðu í París. Ef það er eitt lið sögulega sem getur snúið svona stöðu þá er það að sjálfsögðu Liverpool þannig að höldum ennþá aðeins í vonina.

Meistaradeildarsæti á næsta tímabili er hinsvegar ennþá möguleiki eftir nokkuð góða helgi í ensku deildinni. Chelsea og Aston Villa töpuðu stigum á meðan Liverpool vann góðan sigur á Fulham. Spáum aðeins í stöðuna í deildinni almennt enda áhugaverð staða á flestum vígsstöðvum.

Bræðslan 2026 – Gjafaleikur

Áskell Heiðar Bræðslustjóri var með okkur að þessu sinni en þeir bræður eru einmitt að fara hefja sölu miða á Bræðsluna 2026 og kynntu byrjunarliðið á Bræðslunni í dag. Sjá nánar hér

Bræðslan er ríkishátíð Kop.is og af þessu tilefni hlöðum við í gjafaleik og gefum tveimur heppnum tvo miða á Bræðsluna í ár.

Eina sem þarf til að vera með er að skilja eftir ummæli við þessa færslu eða þessa færslu á Facebook síðu Kop.is og hafa netfang með.

Stjórnandi: Einar Matthías

Viðmælendur: Maggi og Áskell Heiðar

Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti:

Gull Áfengislaus / Verdi Travel  / Ögurverk ehf

MP3: Þáttur 565

Gullkastið – Allt Undir
Frammistaða Liverpool um helgina var í beinu framhaldi af tímabilinu í heild og því lá við að skoða hvað væri raunverulega í boði á þjálfaramarkaðnum í sumar. Hvaða nöfn eru þetta sem eru efst hjá veðbönkum og er hægt að máta þá stjóra við Liverpool?

Verkefni þessarar viku ráða svo líklega úrslitum um þetta tímabil og jafnvel næsta tímabil líka. Ef að Liverpool liðið ætlar að sýna eitthvað baráttuþrek og hjarta í vetur þá þetta tímapunkturinn til að byrja.

Stjórnandi: Einar Matthías

Viðmælendur: Maggi

Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti:

Gull Áfengislaus / Verdi Travel  / Ögurverk ehf

MP3: Þáttur 564

Næsti stjóri Liverpool?
Þetta bara getur ekki annað en verið búið hjá Arne Slot með Liverpool, hvort sem það verði núna strax í kjölfarið á einni vandræðalegustu frammistöðum Liverpool gegn Man City, eftir einvígið gegn PSG sem líklega engum hlakkar til að sjá eða í lok tímabilsins. Þjálfari sem nær ekki einu prósenti aukalega út úr nokkrum leikmanni á ekki framtíð fyrir sér í starfi. Auðvitað er engin töfralausn úr þess að reka stjórann með tilheyrandi óvissu, en eins og staðan er orðin gæti það ekki hreinlega skaðað mikið.

Slot kom inn fyrir síðasta tímabil og gerði litlar en jákvæðar breytingar á uppleggi liðsins sem virkuðu vel þar til öll liðin í deildinni fundu lausn á hans uppleggi og við höfum varla séð til sólar síðan.

Af síðustu sjö leikjum hefur Liverpool unnið tvo, Wolves í bikar og Galatarsaray heima. Eitt jafntefli sem var eina stig Igor Tudor með Spurs og fjórir tapleikir. Enginn sigur í síðustu þremur deildarleikjum sem voru gegn Wolves, Spurs og Brighton. Liðið er í frjálsu falli á versta tíma og vonleysið áþreifanlegt. Það að byrja rosalegt leikjaprógramm næstu vikur á 4-0 niðurlægingu gegn Man City er reka stjórann strax í dag lélegt.

Félagið sendi þau skilaboð til Liverpool fjölmiðlanna í landsleikjapásunni að Arne Slot væri ennþá planið fyrir næsta tímabil og t.d. stjórar eins og Xabi Alonso væru ekki á lista þar sem þeir pössuðu ekki inn í hugmyndafræði félagsins. Hvort sem eitthvað var að marka þetta eða ekki þá hljómar þetta ekkert eðlilega ósannfærandi og heimskulega núna og ef þetta er staðan þarf að skipta fleirum út hjá Liverpool en stjóranum.

Reyndar er búið að orða Richard Hughes annað í vetur og framtíð Michael Edwards er vægast sagt í uppnámi úr því ekki stendur lengur til að kaupa annað knattspyrnufélag. Þeir mættu btw einbeita sér að því að reka eitt félag vel áður en þeir kaupa annað.

Það er erfitt að kaupa fréttir um að Liverpool ætli ekkert að gera í sumar, hópurinn er ekki að spila fyrir stjórann, stuðningsmenn vilja sjá breytingar og slík staðan endar bara á einn veg. Skoðum því aðeins hvað er í boði á þjálfara markaðnum. Það er engin Jurgen Klopp töfralausn í boði en það þýðir ekki að það sé ekki hægt að gera kröfu um meira en það sem við erum að horfa á núna.

Xabi Alonso

Þegar Klopp tilkynnti um brottför sína var Alonso lang heitasti bitinn á markaðnum og endaði vissulega hjá Real Madríd. Helstu fyrirvarar sem settir eru við Alonso eru að hann er sagður vilja spila með þrjá miðverði og vængbakverði og að hans upplegg er ekkert mikið meira spennandi en Arne Slot, hægur bolti og litlu skemmtilegri.

Hann tók við Leverkusen liði og hóp sem passaði vel fyrir slíkt upplegg og náði frábærum árangri með það. En höfum alveg í huga að áður en hann tók við Leverkusen tengdi ekki nokkur maður hans leikstíl við þrjá miðverði eða vængbakverði. Real Madríd byrjaði þetta tímabil svo með fjögurra manna varnarlínu í takti við hópinn sem hann fékk hjá þeim. Sem leikmaður held ég að Alonso hafi aldrei spilað í liði sem lagði leikinn þannig upp. Þessi fyrirvari á honum sem mögulegum stjóra hljómar því ákaflega ósannfærandi. Fyrir utan að hjá Liverpool er jafnan vandamál að ná í lið með tvo heila miðverði, hvað þá fleiri.

Munurinn á Alonso er að því er virðist hvað mest í sveigjanleika, Alonso er sveigjanlegur og aðlagar leik sinn eftir aðstæðum með breytilegum kerfum og tempói. Alonso leyfir meiri hreyfanleika og “chaos“. Leverkusen gat sannarlega spilað hægan bolta inn á milli en sprengdi svo upp þess á milli og skoraði töluvert af mörkum.

Alonso er ennþá tiltölulega ungur stjóri en vissulega búinn með góðan skóla í Þýskalandi og auðvitað þessa nokkra mánuði hjá Real Madríd. Hann er svo með augljósa tengingu við Liverpool sem skemmir ekki fyrir. Hvort hann sé málið eða ekki er erfitt að segja og hvað þá hvernig þetta er reiknað innanhúss hjá Liverpool.

Alonso byrjaði ferilinn sem þjálfari í Meistaraflokki á að koma B liði Real Soceidad upp um deild en féll með þá tímabilið á eftir og hætti þá um vorið. Hann var því ekkert jafn heit markaðsvara þegar hann tók við Leverkusen og hann hafði verið sumarið á undan og fékk ekki vinnu fyrr en í október tímabilið á eftir þegar Leverkusen hringdi. Hjá Leverkusen náði hann ekki bara að gera þá að meisturum í fyrsta skipti í sögunni heldur töpuðu þeir ekki leik 51 leik í röð.

Alonso er enginn Klopp og það er óvissa með hvernig hans framtíð verður en næsta starf verður mjög líklega annað elítulið og hann er ennþá hvað mest spennandi á frekar takmörkuðum markaði. Hann er líka alveg rosalega tilbúinn í slaginn strax og m.a.s. vel hvíldur eftir þetta tímabil. Skemmir ekki heldur fyrir að hann er búinn með Real kláðann.

Luis Enrique

Næsti andstæðingur Liverpool er líka einn heitasti bitinn á markaðnum, PSG eru að reyna að framlengja samning hans og Enrique hefur sjálfur hefur sagt að hann klári samninga sína og ætli sér ekki að fara. Núverandi samningur er út tímabilið 2027 og því tekur því varla að ræða hann frekar.

PSG þegar liðið er upp á sitt besta spilar frábæran fótbolta og unnu Meistaradeildina loksins í fyrra. Hann er með langbesta liðið í Frakklandi og fær að fresta leikjum þegar álagið verður meira en einn leikur á viku í Evrópu sem hjálpar rosalega mikið. PSG hafa ekkert verið merkilegir fyrir áramót í Meistaradeildinni þegar leikjaálagið er þéttara á þeim og ekki náð í topp 8 tvö tímabil í röð.

Enrique hefur hinsvegar verið að þjálfa hópa sem hafa mikla yfirburði frá því hann tók við Barcelona 2014. Hann var þar til 2017, tók þá við landsliði Spánar og eftir það PSG.

Julien Nagelsmann

Einn orðrómurinn er að Liverpool vilji bíða eftir Nagelsmann sem á eftir að klára HM með Þjóðverjum. Honum var töluvert líkt við Klopp þegar hann var að byrja sem stjóri (10 ára). Nagelsmann leggur áherslu á mikla pressu og flæði í stöðum leikmanna á miðsvæðinu. Hann er mest að vinna með  4-2-3-1 / 4-2-2-2 kerfi, þar sem lögð er áhersla á hraðar skyndisóknir og að fjölmenna á miðjuna, á meðan bakverðir sjá um breiddina á vellinum. Eitthvað sem gæti hentað okkar hópi ágætlega.

Nagelsmann er einhvernvegin ennþá bara 38 ára og því varla byrjaður sem stjóri. Hann gerði magnaða hluti með Hoffenheim og svo í kjölfarið Leipzig. Hann gerði Bayern að meisturum og var að standa sig ágætlega með liðið en leikstíll hans var ekki vinsæll innan liðsins og var hann á endanum rekinn. Mögulega var heldur ekki auðvelt fyrir 34 ára stjóra að stýra hópnum hjá Bayern. Hann tók svo 36 ára við landsliði Þjóðverja.

Stjóri eins og Alonso sem mjög líklega tekur við stóru liði næst þegar hann skiptir um starfsvettvang og mjög líklega utan Þýskalands.

Sebastian Hoeneß

Annar ungur stjóri af þýska Hoffenheim/Leipzig/Bayern skólanum. Hann er sagður góður í að þróa leikmenn og bæta undir sinni stjórn. Vinnusemi og pressa er einnig eitt af hans aðalsmerkjum. Hann er sagður eiga aðdádendur innan Liverpool. Hann er búinn að taka Stuttgart úr fallbaráttu í Meistaradeild og spilar skemmtilegan fótbolta.

Hefur verið stjóri í Bundesliga frá 2020, fyrst í tvö tímabil með Hoffenheim og svo Stuttgart. Auðvitað sonur Uli Honess. Líklegt að næsta skref hjá honum yrði Bayern þar sem hann var áður þjálfari B liðsins og í yngri flokkum en hann er líka líklegur til að vilja færa sig út fyrir landssteinana.

Klárlega stjóri sem tekur á næstunni við stærra liði en hann er að stýra núna.

Fabregas

Enn einn stjórinn sem tekur við stærra liði á næstu árum er klárlega Fabregas sem nú er stjóri og einn eigenda Como á Ítalíu. Hann er hinsvegar 38 ára á sínu þriðja tímabili sem er ekki nóg til að taka við Liverpool eins og staðan er núna.

Aðrir

Erlendir

Nöfn eins og Xavi, Arbeloa, Inzaghi, Maresca, Terzic og Rose komast á blað hjá veðbönkum en teljast alls ekki líklegir

Innan Englands

Iraola stjóri Bournemouth sem Richard Hughes réði þangað. Hann er jafngamall og Hoeneß en með reynslu úr La Liga og Úrvalsdeildinni. Hann vill spila pressu fótbolta og hefur náð ágætum árangri með Bournemouth. Líklega er nokkuð gott í vetur að lenda ekki í neinu veseni í deildinni m.v. hvað þeir misstu af leikmönnum í sumar og janúar. Ekki beint það sem maður er að vonast eftir til Liverpool en hver veit.

Emery væri hægt að gera verr en hann og fróðlegt hvort hann geti meira með betra lið þó hann hafi ekki náð því hjá Arsenal og PSG.

Eddie Howe er líka með mikla tengingu við stjórnendur Liverpool og alveg líklegur til að skipta um lið í sumar. Hvort Liverpool hefði áhuga er annað mál. Gerir engan spenntan held ég.

Steven Gerrard er auðvitað alltaf í umræðunni og ofarlega hjá veðbönkum yfir næsta stjóra Liverpool en þá jafnan sem bráðabirgðastjóri. Hann hefur reyndar sagst vera opinn fyrir því að koma sem aðstoðarstjóri hjá Liverpool en hans CV sem stjóri gefur alls ekkert tilefni til að tengja hann við stjórastöðuna hjá Liverpool.

Gareth Southgate, úff

Það er svo auðvitað slatti af öðrum sem geta vel verið á lista, rétt eins og Arne Slot var ekki á neinum einasta óskalista stuðningsmanna Liverpool en félagið landaði vissulega titli undir hans stjórn síðasta vor.

Note: There is a poll embedded within this post, please visit the site to participate in this post's poll.