Spurningar úr 21. aldar Fótbolta Quiz

Sparkspekingar fögnuðu 23 ára afmæli bjórsins og útborgunardegi í takt við Fótbolta Quiz á English Pub. Það var boðið upp á hljóðdæmi, tvær myndagetraunir auk textaspurninga. Hægt var að fá alls 71 stig í keppninni en sigurliðið var með 63 stig. Hart var barist um efstu sætin. Hérna eru textaspurningarnar. Hendi inn svörunum um helgina. Hendið á mig skilaboðum á FB eða Twitter ef ég gleymi því.

Næsta keppni eftir c.a. tvær vikur í Hafnarfirði og eftir mánuð í miðbænum. (more…)



Suarez

Spurningar úr síðustu keppni – svör komin

Hér gefur að líta spurningarnar frá síðustu keppni sem fram fór á English Pub í Hafnarfirði fimmtudagskvöldið 2. febrúar. Tommi Leifs var gestaspyrill og slaufaði kvöldinu með 20 frábærum spurningum. Hér getur að líta upphitunarspurningar úr minni smiðju. Ég skal henda inn svörunum um helgina. Enjoy. meira

NEWS_1236770503_gaucci

Geðveikir forsetar á Ítalíu

Ekki þarf að fylgjast lengi með ítalskri knattspyrnu áður en tekið er eftir því hve mikil völd forsetar félaganna hafa. Miklum völdum fylgja hins vegar öflugt sviðsljós sem nokkrir forsetar hafa ekkert á móti því að baða sig í. Sum félög eru svo heppin að hafa ábyrgan og traustan forseta en það gildir ekki um… meira

Zico

Fallegasta mark Zico

Brasilíumaðurinn Zico skoraði mörg glæsimörkin á löngum ferli. Flestir muna eftir tilþrifum hans á HM á Spáni 1982 þar sem hann skoraði bæði með langskotum og bakfallsspyrnum. Að mati Zico skoraði hann hins vegar sitt flottasta mark í Keisarabikarnum í Japan árið 1993, fertugur að aldri. Mark sem líklega fæstir hafa séð. Gefum goðsögninni orðið. meira

Jennings

Mark Pat Jennings gegn United

Það er alveg sama hversu vel maður telur sig vera að sér í knattspyrnumálum. Alltaf kemur eitthvað nýtt í ljós. Nýjasta dæmið í mínu tilviki er mark sem Pat Jennings, landsliðsmarkvörður Norður-Íra, skoraði fyrir Tottenham gegn Manchester United í leiknum um góðgerðarskjöldinn árið 1967. Í marki United stóð Alex Stepney. Leiknum lauk með 3-3 jafntefli… meira

Peningar ekki ávísun á árangur

Mynd fengin af www.flickr.com síðu MCFC

Mynd fengin af www.flickr.com síðu MCFC

Manchester City hafnaði í 14. sæti í ensku úrvalsdeildinni vorið 2007. Undir stjórn Stuart Pearce skoraði liðið aðeins 29 mörk allt tímabilið, jafn mörg og Watford sem hafnaði í neðsta sæti. Sá sem hefði spáð City Englandsmeistara titli vorið 2012 á þeim tíma hefði verið lagður inn á geðdeild. Að loknum þrettán umferðum í deildinni í vetur situr City á toppnum, enn ósigrað og hefur skorað 43 mörk. Ótrúlegar sviptingar á fjórum tímabilum og ástæðan virðist blasa við. Óendanlega djúpir vasar eigendanna. (more…)

Pub Quiz Hafnarfjörður #2

Gunnleifur Gunnleifs úr FH og Hilmar Trausti, fyrirliði Hauka, verða gestaspyrlar á English Pub í Hafnarfirði á fimmtudag klukkan 20. Nánar um það hér.
Það er ekki úr vegi að skella inn einni myndaþraut fyrir ykkur sparkspekingana. Hvaða markheppni knattspyrnumaður er þetta? (more…)

Fótbolta Quiz í kvöld – upphitun

Í tilefni af fyrsta Fótbolta Quiz vetrarins í Hafnarfirði í kvöld (sjá hér) er ein nýþung upphitunarspurning fyrir sparkspekinga að glíma við.

Spurt er um Íslending. Hann hefur komið við hjá mörgum íslenskum félögum þar á meðal FH og KR en einnig haft viðkomu á Akureyri og Hornafirði. Auk knattspyrnu hefur hann getið sér gott orðspor í annarri íþróttagrein. Undanfarin ár hefur hann þó einbeitt sér að knattspyrnunni. Hann var mikið í umræðunni á vormánuðum en fór lítið fyrir honum í sumar ólíkt því sem reiknað hafði verið með. Hann er deilir nafni með karakter af gamla skólanum í Spaugstofunni.

Svar sendist á tumi@sammarinn.com. Dregið verður úr réttum svörum og fær viðkomandi einn skítkaldan á English Pub í Hafnarfirði í kvöld.

Hversu há mega ofurlaun landsliðsþjálfarans vera?

Knattspyrnusamband Íslands á í viðræðum við Svíann Lars Lagerbäck um að gerast næsti landsliðsþjálfari Íslands. Hávær umræða hefur verið í þjóðfélaginu undanfarna mánuði um að tími sé kominn á erlendan landsliðsþjálfara þótt skoðanir séu svo sannarlega skiptar.
Flestir eru á því að Lagerbäck sé góður kostur en helsta gagnrýnin beinist að þeim launum sem talið er að greiða þurfi erlendum landsliðsþjálfara. Óhætt er að segja að Svíinn hafi haft góðar tekjur undanfarin ár. Himinn og haf er þó á milli launa hans sem landsliðsþjálfari Svíþjóðar annars vegar og Nígeríu hins vegar. (more…)

Hver er maðurinn?

“We were due to play Sunderland on 12 January 2002. That night I drank three and a half bottles of wine, took 11 sleeping tablets, woke up at 6am with the shakes, took a couple more tablets, finished off the wine, fell back asleep, woke up again at 9am, had a treble brandy, another sleeping tablet, a smoke and went to the game.

I was in a terrible state, so I had another treble brandy, took another tablet and went out and played a blinder. Afterwards, I went home and fell asleep. Next morning I asked Jimmy “Five Bellies” how I had done. “Look at the table,” he said, pointing to a bottle of champagne. “You won man of the match.” (more…)

Next Page »